Launafulltrúin
Launafulltrúin
Með því að fela okkur launavinnsluna fær fyrirtækið þitt áreiðanlega og persónulega þjónustu. Þú sparar tíma og færð faglega aðstoð án þess að þurfa að ráða starfsmann í fullt starf við launamál.
Nánar um þjónustuna
Launavinnsla í öruggum höndum
Við aðstoðum fyrirtæki við launavinnslu af nákvæmni og með trúnað að leiðarljósi. Þannig færðu meiri tíma til að sinna rekstrinum og starfsfólkið þitt getur treyst á faglega meðferð launamála.
Hvers vegna að útvista launavinnslu?
Laun snúast um meira en útreikninga. Taka þarf mið af kjarasamningum, orlofi, frádrætti og launatengdum gjöldum og gæta þess að skil séu á réttum tíma. Mistök geta valdið aukakostnaði og óánægju starfsfólks.
Með því að fela okkur launavinnsluna fær fyrirtækið faglega aðstoð án þess að þurfa að ráða sérstakan starfsmann í launamál. Það sparar tíma, dregur úr hættu á mistökum og léttir á daglegu álagi.
Persónuleg þjónusta og trúnaður
Sólbjörg Laufey Vigfúsdóttir er tengiliður þinn vegna launavinnslu hjá NTV Bókhaldi og Þjálfun. Hafðu samband og við finnum fyrirkomulag sem hentar þínu fyrirtæki.
