Einkakennsla
Einkakennsla og afleysingar
Við sérhæfum okkur í sérsniðinni bókhaldskennslu fyrir fyrirtæki sem vilja efla hæfni starfsfólks síns við vinnslu bókhalds.
Þjálfunin er skipulögð í samræmi við þarfir hvers fyrirtækis og hægt er að velja milli einstaklings- eða hópkennslu, hvort sem er í ykkar húsnæði eða hjá okkur í faglegu umhverfi.
Auk þess bjóðum við upp á afleysingaþjónustu til að tryggja órofið vinnuflæði þegar tímabundin forföll verða.
Við kennum á flest öll bókhaldsforrit
Um mig
Guðrún Ó. Axelsdóttir
Ég hef ástríðu fyrir kennslu
Ég er viðurkenndur bókari með rætur i atvinnlulífinu, ég hef reynslu af því að vera í eigin rekstri og brennandi áhuga á öllu sem viðkemur rekstri og bókhaldi.
Þegar ég lauk námi sem viðurkenndur bókari í byrjun árs 2006 fannst mér vanta meiri verklega þjálfun. Ég hefði gjarnan viljað geta leitað til reynds bókara til að fá persónulega leiðsögn við að stíga fyrstu skrefin.
Ég hafði einnig rekið tvær skóverslanir í Kaupmannahöfn og þekkti því vel löngunina til að geta fært eigið bókhald og skilið reksturinn betur. Þessi reynsla varð kveikjan að því að bjóða öðrum þá aðstoð sem ég hafði sjálf saknað.
Í dag hjálpa ég fólki að öðlast meira öryggi í bókhaldi og betri yfirsýn yfir reksturinn, með persónulegri leiðsögn sem tekur mið af þörfum hvers og eins.
Styrkleikar mínir liggja ekki síst í mannlegum samskiptum og kennslu. Ég er þolinmóð og legg mig fram um að útskýra flókin mál á einfaldan og skiljanlegan hátt. Hjá mér má spyrja og læra á sínum hraða.
Meðmæli
Ég hef rekið fyrirtæki í nokkur ár og fannst ég þurfa að dýpka mig betur í bókhaldinu.
Fór á vinnustofuna hjá NTV bókhald og þjálfun, sem var bæði gagnlegt og skemmtilegt.
Öðlaðist meiri skilning og þetta var vel skipulagt.
Takk fyrir mig
Jón Karlsson
Gjörbreyttar vinnuaðferðir
Ég tók við nýju starfi sem krafðist töluverðrar þekkingar á bókhaldi. Þegar ég mætti á fyrstu vinnustofuna hafði ég í raun aðeins grunnskilning, en á mjög skömmum tíma kenndi Guðrún mér allt sem ég þurfti til að skilja og vinna bókhald á mun skilvirkari og faglegri hátt.
Vinnustofan var vel skipulögð, markviss og sniðin að þörfum þátttakenda þar sem að maður kemur með sín eigin gögn. Guðrún er bæði einstaklega fær kennari og þolinmóður leiðbeinandi. Þekkingin og innsýnin sem ég fékk í gegnum þessa vinnustofu gjörbreytti vinnuaðferðum mínum og gaf mér aukið sjálfstraust í verkefnum sem tengjast bókhaldi.
Èg hef getað leitað til Guðrúnar utan tímanna sem er ómetanlegt þegar maður strandar í miðju verki.
Ég mæli eindregið með vinnustofu Guðrúnar hjá NTV fyrir alla sem vilja styrkja færni sína í bókhaldi, hvort sem þeir eru byrjendur eða vilja dýpka skilning sinn.
Kolbrún Jónsdóttir
Ég er lögmaður og hef verið í sjálfstæðum rekstri í rúmt ár. Ég lét færa bókhaldið fyrir mig en það fór samt töluverður tími í það hjá mér að hafa reiður á gögnum og útskýra fyrir bókaranum hvað ég hafði eiginlega verið að gera. Ég var líka hrædd um að hafa ekki yfirsýn svo ég var að reyna að halda utan um reksturinn í töflureikni og það fór líka tími í það. Á endanum ákvað ég að fá mér bókhaldskerfi og læra á það.
Það var tilviljun að Uniconta varð fyrir valinu sem bókhaldskerfi hjá mér en það voru námskeið í boði einmitt á tíma sem hentaði mér. Guðrún Axelsdóttir sá um þjálfunina og kennsluhættir hennar komu mér ánægjulega á óvart. Þátttakendur vinna eingöngu með sitt eigið bókhald en þurfa ekki að sitja fyrirlestra eða fletta í gegnum powerpoint kynningar. Kennslan miðast við þarfir og getu hvers og eins og markmiðið er að koma reiðu á bókhald fyrirtækisins ef þörf er á því og gera þátttakendur í náminu sjálfbjarga.
Tímarnir hafa nýst mér mjög vel. Mér finnst Uniconta þægilegt kerfi og nú get ég fært bókhaldið sjálf, jafnóðum. Ég á áreiðanlega eftir að lenda í vandræðum með eitthvað eða klúðra einhverju en það er allt í lagi því það er hægt að fá aðstoð við að leysa flækjur.
