Vinnustofa í bókhaldi
Vinnustofa í bókhaldi
Vinnustofa í bókhaldi er ætluð þeim sem vilja sjá um að bóka fyrir félagið sitt undir handleiðslu reynds bókara. Mikilvægt er að þátttakendur hafi grunnfærni í bókhaldi svo vinnustofan nýtist sem best og mætir hver og einn með sín gögn og tölvu. Ef þú ert algjör byrjandi en langar að læra að halda utan um bókhaldið þitt, mælum við með því að bóka fyrst einkakennslu.
Helsti kostur þess að bóka fyrir sitt fyrirtæki er aukin yfirsýn yfir reksturinn. Mikilvægt er að velja bókhaldskerfi sem hentar sem best rekstrinum og getur verið gott að fá leiðsögn áður en byrjað er að bóka, bæði hvað varðar uppsetningu og verklag en ekki síður til að koma í veg fyrir kostnaðarsamar leiðréttingar síðar meir.
Vinnustofan fer fram á miðvikudögum frá 16:00 til 19:00 og aðeins fimm manns komast að í einu. Vinnustofan er hugsuð þannig að þáttakendur vinna í þrjá tíma þar sem veitt er leiðsögn á milli.
Bókhaldskerfi sem við sérhæfum okkur í eru: Uniconta, Payday, DK og Regla.
Meðmæli
Ég hef rekið fyrirtæki í nokkur ár og fannst ég þurfa að dýpka mig betur í bókhaldinu.
Fór á vinnustofuna hjá NTV bókhald og þjálfun, sem var bæði gagnlegt og skemmtilegt.
Öðlaðist meiri skilning og þetta var vel skipulagt.
Takk fyrir mig
Jón Karlsson
Gjörbreyttar vinnuaðferðir
Ég tók við nýju starfi sem krafðist töluverðrar þekkingar á bókhaldi. Þegar ég mætti á fyrstu vinnustofuna hafði ég í raun aðeins grunnskilning, en á mjög skömmum tíma kenndi Guðrún mér allt sem ég þurfti til að skilja og vinna bókhald á mun skilvirkari og faglegri hátt.
Vinnustofan var vel skipulögð, markviss og sniðin að þörfum þátttakenda þar sem að maður kemur með sín eigin gögn. Guðrún er bæði einstaklega fær kennari og þolinmóður leiðbeinandi. Þekkingin og innsýnin sem ég fékk í gegnum þessa vinnustofu gjörbreytti vinnuaðferðum mínum og gaf mér aukið sjálfstraust í verkefnum sem tengjast bókhaldi.
Èg hef getað leitað til Guðrúnar utan tímanna sem er ómetanlegt þegar maður strandar í miðju verki.
Ég mæli eindregið með vinnustofu Guðrúnar hjá NTV fyrir alla sem vilja styrkja færni sína í bókhaldi, hvort sem þeir eru byrjendur eða vilja dýpka skilning sinn.
Kolbrún Jónsdóttir
Ég er lögmaður og hef verið í sjálfstæðum rekstri í rúmt ár. Ég lét færa bókhaldið fyrir mig en það fór samt töluverður tími í það hjá mér að hafa reiður á gögnum og útskýra fyrir bókaranum hvað ég hafði eiginlega verið að gera. Ég var líka hrædd um að hafa ekki yfirsýn svo ég var að reyna að halda utan um reksturinn í töflureikni og það fór líka tími í það. Á endanum ákvað ég að fá mér bókhaldskerfi og læra á það.
Það var tilviljun að Uniconta varð fyrir valinu sem bókhaldskerfi hjá mér en það voru námskeið í boði einmitt á tíma sem hentaði mér. Guðrún Axelsdóttir sá um þjálfunina og kennsluhættir hennar komu mér ánægjulega á óvart. Þátttakendur vinna eingöngu með sitt eigið bókhald en þurfa ekki að sitja fyrirlestra eða fletta í gegnum powerpoint kynningar. Kennslan miðast við þarfir og getu hvers og eins og markmiðið er að koma reiðu á bókhald fyrirtækisins ef þörf er á því og gera þátttakendur í náminu sjálfbjarga.
Tímarnir hafa nýst mér mjög vel. Mér finnst Uniconta þægilegt kerfi og nú get ég fært bókhaldið sjálf, jafnóðum. Ég á áreiðanlega eftir að lenda í vandræðum með eitthvað eða klúðra einhverju en það er allt í lagi því það er hægt að fá aðstoð við að leysa flækjur.
