Fjármálastjóri til leigu

Agnar Burgess

Fjármálafræðingur og gervigreindarþjálfari

Vantar þig fjármálastjóra eða sérfræðing í gervigreind?

Um mig

BSc. Viðskiptafræði – fjármál – Háskóli Íslands

MSc. Finance – Warwick Business School, University of Warwick

Skýr yfirsýn og traust fjármálastjórn

Ég hjálpa fyrirtækjum og félögum að ná betri yfirsýn yfir reksturinn, taka upplýstar ákvarðanir og byggja upp fjármálastarf sem styður við markmið þeirra.

Ég hef starfað í yfir áratug við fjármálastjórnun, greiningar og stefnumótun, bæði hér heima og erlendis. Meðal verkefna sem ég hef leitt eru innleiðing fjárhagskerfa, þróun rekstrarlíkana og gerð stjórnendamælaborða. Ég veiti einnig stjórnendum og eigendum ráðgjöf við flóknar ákvarðanir.

Reynsla mín spannar allt frá íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum til alþjóðlegra tæknifyrirtækja á borð við Klarna í Svíþjóð og ZOE í Bretlandi.

 

Hvort sem þú þarft aðstoð við tímabundið verkefni, ráðgjöf eða fjármálastjóra í hlutastarfi (fractional CFO), legg ég áherslu á að:

• Veita skýra innsýn í stöðu fyrirtækisins með gögnum og greiningum.• Tryggja að ferlar og verkfæri styðji við vöxt og skilvirkni.
• Fjármáladeildin sé virkur samstarfsaðili í rekstri og stefnumótun.

 

Markmið mitt er einfalt: að hjálpa fyrirtækjum að nýta fjármálin sem drifkraft til vaxtar, öryggis og árangurs.