Nútíma bókhald

Pappírslaust bókhald

NTV bóhald og þjálfun

Þjónstan sem sparar peninga

Einkakennsla

Við kennum þér að færa bókhaldið þitt, þú sparar ekki bara peninga heldur færðu meira innsýn

Launafulltrú

Fáðu tilboð í að gera launin, það er margfalt ódýrara

Fjármálastjóri

Vantar þið aðstoð með fjármálin, við leigum fjármálastóra í tímabundin verkefni

Bókhald og ráðgjöf

Hvort sem þú ert að leita að öruggu samstarfi til lengri tíma eða stíga þín fyrstu skref í rekstri, þá erum við hér til að einfalda ferlið og veita skýra yfirsýn yfir fjármálin.

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, skilvirkni og áreiðanleika. Markmið okkar er að veita þér öryggi í fjármálum svo þú getir einbeitt þér að því sem þú gerir best, að reka þitt fyrirtæki.

Hafðu samband og við tökum vel á móti þér!

Almennt bókhald

Dagleg bókun reikninga, skil á virðisaukaskatti afstemmingar á bankareikningum, lánardrottnum og viðskiptamönnum. Útgáfu reikninga, stofna kröfur í banka

Launavinnsla

Útreikningur launa. Gerð launaseðla, bankaskilagreina og skilagreina til skattayfirvalda, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og annarra.

Ársreikningur og framtal

Við gerum ársreikninga og skattframtöl lögaðila. Einnig skattframtöl einstaklinga með eða án reksturs.

Stofna félag - Val bókhaldkerfa

Við leiðbeinu þér hvað rétta rekstraform sem hentar þínum rekstri og eins hvaða bókhaldskerfi hentar best þínum rekstri

Meðmæli

Ég hef rekið fyrirtæki í nokkur ár og fannst ég þurfa að dýpka mig betur í bókhaldinu.
Fór á vinnustofuna hjá NTV bókhald og þjálfun, sem var bæði gagnlegt og skemmtilegt.
Öðlaðist meiri skilning og þetta var vel skipulagt.
Takk fyrir mig

 

Rated 5 out of 5

Jón Karlsson

CEO, Draumagolf

Gjörbreyttar vinnuaðferðir
Ég tók við nýju starfi sem krafðist töluverðrar þekkingar á bókhaldi. Þegar ég mætti á fyrstu vinnustofuna hafði ég í raun aðeins grunnskilning, en á mjög skömmum tíma kenndi Guðrún mér allt sem ég þurfti til að skilja og vinna bókhald á mun skilvirkari og faglegri hátt.

Vinnustofan var vel skipulögð, markviss og sniðin að þörfum þátttakenda þar sem að maður kemur með sín eigin gögn. Guðrún er bæði einstaklega fær kennari og þolinmóður leiðbeinandi. Þekkingin og innsýnin sem ég fékk í gegnum þessa vinnustofu gjörbreytti vinnuaðferðum mínum og gaf mér aukið sjálfstraust í verkefnum sem tengjast bókhaldi.

Èg hef getað leitað til Guðrúnar utan tímanna sem er ómetanlegt þegar maður strandar í miðju verki.

Ég mæli eindregið með vinnustofu Guðrúnar hjá NTV fyrir alla sem vilja styrkja færni sína í bókhaldi, hvort sem þeir eru byrjendur eða vilja dýpka skilning sinn.

Rated 5 out of 5

Kolbrún Jónsdóttir

Skrifstofustjóri - Fjölsmiðjan

Ég er lögmaður og hef verið í sjálfstæðum rekstri í rúmt ár. Ég lét færa bókhaldið fyrir mig en það fór samt töluverður tími í það hjá mér að hafa reiður á gögnum og útskýra fyrir bókaranum hvað ég hafði eiginlega verið að gera. Ég var líka hrædd um að hafa ekki yfirsýn svo ég var að reyna að halda utan um reksturinn í töflureikni og það fór líka tími í það. Á endanum ákvað ég að fá mér bókhaldskerfi og læra á það.

Það var tilviljun að Uniconta varð fyrir valinu sem bókhaldskerfi hjá mér en það voru námskeið í boði einmitt á tíma sem hentaði mér. Guðrún Axelsdóttir sá um þjálfunina og kennsluhættir hennar komu mér ánægjulega á óvart. Þátttakendur vinna eingöngu með sitt eigið bókhald en þurfa ekki að sitja fyrirlestra eða fletta í gegnum powerpoint kynningar. Kennslan miðast við þarfir og getu hvers og eins og markmiðið er að koma reiðu á bókhald fyrirtækisins ef þörf er á því og gera þátttakendur í náminu sjálfbjarga.

Tímarnir hafa nýst mér mjög vel. Mér finnst Uniconta þægilegt kerfi og nú get ég fært bókhaldið sjálf, jafnóðum. Ég á áreiðanlega eftir að lenda í vandræðum með eitthvað eða klúðra einhverju en það er allt í lagi því það er hægt að fá aðstoð við að leysa flækjur.

Rated 5 out of 5

Eva Hauksdóttir

Hlít Lögmannsstofa